Trios 5
Nýjasti skanninn frá 3Shape.
Skannhausar eru lokaðir til að sporna gegn víxlmengun. Á hausnum er saffír gler sem er rispuþolið. Hver haus er sagður þola 100 skipti í autoclava. 5 tipsar fylgja með kaupum.
Nýjar plasthlífar sem að fara yfir skannann koma með kaupum og hægt að kaupa líka sér. Eykur hreinlæti. 100 plasthlífar fylgja með kaupum.
Engir verkferlar eru nú til staðar. Ekki þarf að fylgja ákveðnum ferli. Engin þörf á að 3D nákvæmisstilla né litastilla (calibration free).
Ekki er þörf á að snerta skjá neitt. Einn hnappurinn virkar sem músarhnappur hinn fyrir skönnun (two button design). Hægt er áfram að nota skanna sem töfrasprota – fara yfir í næsta skref eða velta skanni um. Mjög hraður tekur 2400 myndir á sekúndu. Batterí dugar allan daginn (vs. 45 mín Trios 4 & 3). Hægt er að hrista batterí og þá koma fram línur sem sýna hve mikið batterí er eftir.
Led ljósið sýnir að það sé verið að taka myndir.
Blátt ljós: Tengdur en haus er ekki alveg fastur á.
Blikkandi grænt ljós: Haus er að hitna – ekki tilbúinn.
Grænt stöðugt ljós: Tilbúinn til að skanna.
Það sem fylgir með:
5 tips skannhausar með spegli
3 batterí auk hleðslustöðvar
3Shape snertipenni fyrir snertiskjá
100 plasthlífar
Enginn munur er á nákvæmni milli tegunda aðeins eiginleika á forritum og aukahlutum innan skannans.